Fjölbreytt dagskrá á Afmælisvöku Akureyrar

Listakonan Anna Richards bregður á leik um borð í Húna í dag.
Listakonan Anna Richards bregður á leik um borð í Húna í dag.

Dagskrá Afmælisvöku Akureyrar var formlega kynnt í dag um borð í eikarbátnum Húna II á Polllinum við Akureyri. Afmælisvakan stendur í tíu daga, frá 24. ágúst til 2. september en sjálft 150 ára afmæli bæjarins er miðvikudaginn 29. ágúst. Ungir sem aldnir leggja hönd á plóg við að gera hátíðarhöldin sem eftirminnilegust. Helgina 24.-26. ágúst verður megináhersla lögð á ungu kynslóðina með ýmsum uppákomum, svo sem Götulistahátíðinni Hafurtask og Ung-Fest, útitónleikum unga fólksins, og tónleikum Bravó Bítlanna og Brákar.

Á sjálfan afmælisdaginn 29. ágúst safnast skólabörn saman í miðbænum og gefa bænum einstaka afmælisgjöf. Bæjarstjórn Akureyrar heldur hátíðarfund í Hofi og Afmæliskór Akureyrar flytur Tónagjöf til bæjarbúa, ný verk nokkurra tónskálda sem tengjast bænum.

Mikið verður um að vera seinni helgina, 30. ágúst til 2. september, og má þar nefna frumsýningu á Borgarinnunni, sögu Vilhelmínu Lever, raftónleika í Listagilinu, Rökkurró í Lystigarðinum, hátíðarsamkomu á Akureyrarvelli, kjötkveðjuhátíðina Lyst með List í Listagili og sérstaka Afmælistónleika í Gilinu þar sem fram koma Akureyrarhljómsveitir liðinna ára s.s. Baraflokkurinn, Skriðjöklar og 200.000 naglbítar. Loks verður flugeldasýning á Pollinum.

Nýjast