Fjölbreytt dagskrá á 17. júní

Frá 17. júní á Akureyri í fyrra
Frá 17. júní á Akureyri í fyrra

Fjölbreytt dagskrá verður í boði á Akureyri á sunnudaginn kemur, sjálfan þjóðhátíðardaginn, en hátíðardagskráin hefst í Lystigarðinum um hádegisbil. Þaðan verður skrúðganga að Ráðhústorgi þar sem fjölskyldu-og hátíðardagskrá verður fram eftir kvöldi, ásamt ýmsum öðrum dagskrárliðum. „Dagskráin verður með hefðbundnu sniði og allir ættu að geta fundið sér eitthvað við hæfi,“ segir Heimir Bjarnason umsjónaraðili 17. júní hátíðarhaldanna á Akureyri

Daskráin er annars eftirfarandi:

Klukkan 12.45 byrjar Lúðrasveitin á Akureyri undir stjórn Alberto Carmona að spila í Lystigarðinum en þar hefst hefðbundin dagskrá  klukkan 13 með fánahyllingu, hátíðarávarpi Eiríks Björns Björgvinssonar bæjarstjóra og hugvekju flutt af Pétri Björgvini Þorsteinssyni djákna við Glerárkirkju.   Karlakór Akureyrar – Geysir syngur undir stjórn Roars Kvam og grunnskólanemarnir Þóranna Lilja Steinke og Malik Stefán Turay flytja verðlaunaljóð sín úr ljóðasamkeppninni Akureyri – brosandi bær, sem haldin var í tilefni af 150 ára afmæli Akureyrar.   Dagskránni í Lystigarðinum lýkur klukkan 13. 30 en þá verður skrúðganga þar sem leiðin liggur úr Lystigarðinum og á Ráðhústorg.   

Dagskráin á Ráðhústorgi er í umsjón Skátafélagsins Klakks og hefst hún klukkan 14-17 og svo aftur um kvöldið frá klukkan 21-01.   Dagskráin er fjölbreytt að vanda.  Bæjarbúar og gestir geta reynt sig við ýmsar þrautir í hinu  sívinsæla skátatívolíi. Kynnar í ár eru Gunnar Helgason og Felix Bergsson og meðal þeirra sem fram koma eru Marimbasveit Oddeyrarskóla, Dansfélagið Vefarinn, sönghópurinn Chorus, Lúðrasveitin á  Akureyri, Leikhópurinn Lotta, Lilli Klifurmús, söngvarar frá Söngskóla Maríu Bjarkar,  Jónsi, Ingó Hansen, atriði úr leikritinu Date, Svenni Þór og  Regína Ósk.  Að vanda marsera nýstúdentar úr Menntaskólanum á Akureyri á Ráðhústorg um miðnætti.

 Auk dagskrárinnar á Ráðhústorgi verður árleg bílasýning Bílaklúbbs Akureyrar í Boganum kl 10-20,  sögusigling með eikarbátnum Húna II kl. 17 þar sem fræðst verður um gömlu húsin við Strandgötuna og Oddeyrina og Leikhópurinn Lotta sýnir barnaleikritið Stígvélaði kötturinn í Lystigarðinum kl. 11 og kl. 17.

 

Nýjast