Fjögur rannsóknar- og þjónustuskip komu til Akureyrar í gær og liggja þrjú þeirra í Krossanesi, m.a. rannsóknarskipið Nordic Explorer en þjónuustuskipið Valberg, sem er íslenskt, liggur við bryggju í Fiskihöfninni. Nordic Explorer, sem er tæplega 4.000 tonn að stærð og með 48 manna áhöfn, hefur verið við olíurannsóknir á svæðinu suður af Jan-Mayen og inn á Drekasvæðið í íslensku lögsögunni. Öll þurfa þessi skip mikla þjónustu og hana er að finna á Akureyri. Vonir eru bundnar við að skipakomum sem þessum fari fjölgandi á næstu mánuðum.