Fjögur lið komin í undanúrslit

Fyrri undankeppni Asicsbikarins í blaki í karla-og kvennaflokki fór fram í Mosfellsbæ sl. helgi. Efstu lið allra riðla komust áfram í undanúrslit. Í karlaflokki voru það Stjarnan og HK en í kvennaflokki Stjarnan og Þróttur Neskaupstaður. Seinni undankeppnin fer fram í Neskaupstað fyrstu helgina í febrúar en þar spila liðin sem eftir eru í keppninni um tvö sæti í undanúrslitum í hvorum flokki.

Þar freistar KA þess að komast í úrslit, en félagið hafnaði í öðru sæti í karlaflokki í fyrri undankeppninni og í þriðja sæti í kvennaflokki.

 

Nýjast