Fjársöfnun til stuðnings bændum á Norðurlandi gengur vel

Þórarinn Ingi Pétursson og Guðni Ágústsson voru á Akureyri í dag. Mynd: Karl Eskil
Þórarinn Ingi Pétursson og Guðni Ágústsson voru á Akureyri í dag. Mynd: Karl Eskil

 Á föstudaginn var hleypt af stað söfnun til að styðja við bakið á bændum á þeim svæðum sem urðu fyrir áföllum í óveðrinu, sem gekk yfir Norðurland snemma í september. Guðni Ágústsson formaður verkefnisstjórnar segir að söfnunin hafi farið vel af stað.

 

„Það er mikið samúð með bændum, enda er skaði bænda mikill. Kaupfélag Skagfirðinga gaf í upphafi 5 milljónir króna og það gerði sömuleiðis Landsbankinn.  Við finnum fyrir miklum stuðningi, því flestir eru sammála um að nauðsynlegt sé að bæta skaðann með samhjalp í samfélaginu.“

Þórararinn Ingi Pétursson formaður Landssamtaka sauðfjárbænda segir ekki hægt að meta skaðann í peningum.

„Nei, það er ekki hægt á þessari stundu. Við vitum þó að um tíu þúsund fjár hafa drepist. Í peningum er því verið að að tala um stórar upphæðir. Enginn bóndi er tryggður fyrir svona hamförum. Bjargráðasjóður bætir skaðann, en það verður alrei nema að hluta til.“

Þeir sem vilja styðja við bakið á málefninu geta lagt framlög inn á reikning nr. 0161-15-380370, kt. 630885-1409, í Landsbankanum á Sauðárkróki.

karleskil@vikudagur.is

Nýjast