Fjármögnun Vaðlaheiðarganga:Líklega skrifað undir í næstu viku

„Við fórum gaumgæfilega yfir samningana á þriðjudaginn með fulltrúum fjármálaráðuneytisins og eftir þann fund tel ég að hægt verði að skrifa undir samninga á allra næstu dögum,“ segir Pétur Þór Jónsson framkvæmdastjóri Eyþings. Lánssamningurinn er nú til lokayfirferðar hjá Ríkisábyrgðasjóði.

Alþingi samþykkti í júní lög sem heimila að lána Greiðri leið ehf liðlea 8,7 milljarða króna til að standa straum af kostnaði við gerð Vaðlaheiðarganga. Allir pappírar frá Greiðri leið ehf hafa legið fyrir og hefur seinagangur hins opinbera verið harðlega gagnrýndur af heimafólki og þingmönnum kjördæmisins.

Ríkið fór meðal annars fram á hlutafjáraukningu í Greiðri leið og var það skilyrði uppfyllt.

ÍAV átti lægsta tilboð í gerð ganganna ásamt svissneska fyrirtækinu Matri, tilboðið hljóðaði upp á 8,8 milljarða króna. Sú tala hefur væntanlega hækkað, þar sem tilboðið er orðið eins árs gamalt.

Á meðan ekki hefur verið gengið formlega frá fjármögnun getur verktakinn ekki gengið frá kaupum á jarðgangaborum og öðrum nauðsynlegum tækjum.

Þegar búið er að ganga frá fjármögnun, mun Vegagerðin væntanlega ljúka samningum við verktakana. 

Kristján Þór Júlíusson þingmaður Sjálfstæðisflokksins segir þessar tafir óskiljanlegar.

 „ Firnaöflug tafatækni ríkisstjórnarinnar er eitt af því fáa sem henni virðist til lista lagt. Með ólíkindum er hversu teygst hefur á þessu máli en í dagatali stjórnvalda þykja Norðlendingum allt of margir svokallaðir ,,næstu dagar.“Ég ætla rétt að vona að þeim dögum fari senn að ljúka svo ganga megi til löngu tímabærra verka“segir Kristján Þór Júlíusson.

karleskil@vikudagur.is

Nýjast