Fjárfestar sýna Dysnesi áhuga

„Öll skipulagsvinna tekur talsverðan tíma. Lýsing á deiliskipulagsverkefni fyrir Dysnes-svæðið liggur fyrir og hún verður auglýst fljótlega. Á svæðinu verður í framtíðinni hugsanlega þjónustustöð fyrir verkefni á norðurslóðum,“ segir Guðmundur Sigvaldason sveitarstjóri í Hörgársveit. Dysnes er miðja vegu milli Hörgárósa og Hjalteyrar, skipulagssvæðið er nærri 60 hektarar. Eigendur landsins eru Hafnarsamlag Norðurlands og Hörgársveit.

Atvinnuþróunarfélag Eyjafjarðar fer fyrir tveggja ára átaki sem snýst um að gera Eyjafjörð betur sýnilegan fyrir þann fjölda fyrirtækja sem hyggja á stórfelldar framkvæmdir á norðurslóðum, til dæmis á Grænlandi. Guðmundur segir að skipulagsvinnan tengist vissulega þessu átaksverkefni.

 „Ég lít svo á að skipulagsvinnan sé mikilvæg í ljósi þess að skilgreindar lóðir undir nýja hafnsækna starfsemi eru einfaldlega ekki fyrir hendi við Akureyri og í mínum huga er þess ekki langt að bíða að óskað verður eftir landi og aðstöðu við Eyjafjörð vegna verkefna sem tengjast vinnslu verðmætra efna,“ segir Guðmundur sveitarstjóri.

Jákvæð viðbrögð

Þorvaldur Lúðvík Sigurjónsson framkvæmdastjóri Atvinnuþróunarfélags Eyjafjarðar segir að átaksverkefnið hafi farið vel af stað. Hann staðfestir að erlend fyrirtæki hafi lýst yfir áhuga á að fá aðstöðu á Dysnesi.

„Við höfum  kynnt svæðið fyrir innlendum og erlendum fjárfestum og fengið jákvæð viðbrögð. Innviðir Eyjafjarðarsvæðisins eru traustir, hérna er nánast öll sú þjónusta fyrir hendi sem þessi fyrirtæki þurfa á að halda. Allar aðstæður á Dysnesi benda til þess að þar sé hentugt að byggja upp öflugt iðnaðar-, athafna- og hafnarsvæði. Þess vegna teflum við m.a. fram Dysnesi sem hugsanlegum valkosti.“

karleskil@vikudagur.is

Nýjast