Fimm hafa tilkynnt þátttöku í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í NA kjördæmi.

Ásta Kristín Sigurjónsdóttir stefnir á þriðja sæti framboðslistans
Ásta Kristín Sigurjónsdóttir stefnir á þriðja sæti framboðslistans

Kjördæmisþing Sjálfstæðisflokksins í NA kjördæmi var sett í Mývatnssveit í dag. Á fundinum var lögð fram tillaga stjórnar um að efnt skuli til prófkjörs við val á framboðslista flokksins við þingkosningarnar næsta vor. Tillagan var samþykkt og verður prófkjörið líklega haldið í janúar. Ragnar Sigurðsson formaður kjördæmisráðs segir að reglur prófkjörsins verði ákveðnar á næstu vikum. Hann segir líklegt að kosið verði um sex efstu stæin.

 

Á kjördæmisþinginu í dag hafa fimm tilkynnt þátttöku í prófkjörinu:

Kristján Þór Júlíusson þingmaður sækist eftir fyrsta sæti.

Tryggvi Þór Herbertsson þingmaður sækist eftir fyrsta sæti.

Ásta Kristín Sigurjónsdóttir bæjarfulltrúi í Fjarðabyggð sækist eftir þriðja sæti.

Jens Garðar Helgason bæjarfulltrúi í Fjarðabyggð sætist eftir fjórða til fimmta sæti.

Bergur Þorri Benjamínsson á Akureyri sækist eftir fimmta sæti.

karleskil@vikudagur.is

Nýjast