Fimm ára drengur höfuðkúpubrotnaði í Paradísarlandi á Glerártorgi

Leiktækin í Paradísarlandi
Leiktækin í Paradísarlandi

Slysið átti sér stað síðasta þriðjudag. Drengurinn var að leika sér í hoppukastala en kastaðist út úr honum er eldri og þyngri drengur hoppaði í kastalanum á sama tíma. Höfuðið skall í gólfið með þeim afleiðingum að hann höfuðkúpubrotnaði. Drengurinn var í afmælisveislu í Paradísarlandi, en algengt er að börn og unglingar haldi þar slíkar veislur.

Drengurinn  var strax fluttur á Sjúkrahúsið á Akureyri og segir Sigurður E. Sigurðsson framkvæmdastjóri lækninga að hann hafi hlotið slæman heilahristing  við höggið, auk þess sem höfuðkúpan hafi  brotnað.  Eins og fyrr segir var drengurinn útskrifaður af sjúkrahúsinu í gær. Ásdís Rögnvaldsdóttir hjá Paradísarlandi harmar slysið.  „Við erum auðvitað mjög slegin vegna þessa og brugðið, hugur okkar hefur verið hjá drengnum og fjölskyldu hans. Í kjölfarið var farið yfir allar  vinnu- og öryggisreglur staðarins og búið er að breyta reglum sem gilda í afmælum. Þá hafa dýnur hafa verið settar á stærra svæði. Okkar markmið er auðvitað að allir skemmti sér i Paradísarlandi og fyllsta öryggis sé gætt. Því miður gerðist þetta og við hörmum það mjög.“

Nýjast