Keppendur frá Listhlaupadeild Skautafélags Akureyrar unnu fjögur gullverðlaun á Bikarmóti Skautasambandsins sem fram fór í Egilshöllinni um liðna helgi. Hrafnhildur Ósk Birgisdóttir sigraði í stúlknaflokki A og Elísabet Ingibjörg Sævarsdóttir vann til bronsverðlauna í sama flokki. Systurnar Emilía Rós og Rebekka Rós Ómarsdætur sigruðu í sínum flokkum, Emilía í 12 ára og yngri A og Rebekka í 8 ára og yngri B. Þá sigraði Marta María Jóhannsdóttir í flokki 8 ára og yngri A, Pálína Höskuldsdóttir vann bronsverðlaun í 12 ára og yngri B og Aldís Kara Bergsdóttir vann silfurverðlaun í flokki 10 ára og yngri B.
Tvær í landsliðið
Tvær af stelpunum úr SA, þær Hrafnhildur Ósk og Elísabet Ingibjörg, eru á leið til Graz í Austurríki með íslenska landsliðinu þar sem þær munu keppa á móti á vegum Alþjóða skautasambandsins, ISU Icechallenge, dagana 5.-8. nóvember. Þær eru jafnframt í landsliðshóp ÍSS sem valið verður úr fyrir Norðurlandamótið sem fram fer í Reykjavík 2013.
Hrafnhildur Ósk er 15 ára og hefur fjórum sinnum farið utan með landsliðinu, en hún keppti á ISU-móti í Lúxemborg 2011 og svo í Lettlandi, Finnlandi og Lúxemborg fyrr á þessu ári. Elísabet Ingibjörg er 13 ára og verður þetta hennar önnur landsliðsferð því hún keppti á ISU-móti í Lúxemborg á þessu ári.