Ferjusamgöngur ekki í góðu horfi. Grímseyjarferja biluð og samningur um Hríseyjarferju rennur út um áramót.

Bæjarráð telur nauðsynlegt að eyða óvissu um rekstur Hríseyjarferjunnar en samningur rennur út um ár…
Bæjarráð telur nauðsynlegt að eyða óvissu um rekstur Hríseyjarferjunnar en samningur rennur út um áramót. Sæfari sem siglir til Grímseyjar er bilaður eina ferðina enn og fer í slipp. Mynd Unnur Sæmundsdóttir

Grímseyjarferjan Sæfari er biluð og fer í slipp á næstu dögum. Tímabundinn samningur um rekstur Hríseyjarferjunnar rennur út um áramót. Bæjarráð Akureyrar fjallaði um ferjusamgöngur við Grímsey og Hrísey og lýsti yfir áhyggjum af samgöngumálum eyjanna.

 Fram kemur í bókun bæjarráðs að tíðar bilanir á Grímseyjarferjunni, með tilheyrandi skertri þjónustu og öryggi íbúa og gesta, séu með öllu óviðunandi. „Brýnt er að endurnýja ferjuna og skorar bæjarráð á Vegagerðina og innviðaráðherra að flýta kaupum á nýrri ferju eins og frekast er unnt.“

Þá er að mati bæjarráðs nauðsynlegt að eyða þeirri óvissu sem uppi er um rekstur Hríseyjarferjunnar og tryggja að í framhaldinu verði þjónustustig ekki skert frá því sem nú er. Hríseyjarferjan Sævar er þjóðvegur íbúa og gesta til og frá Hrísey, núgildandi samningur um rekstur ferjunnar rennur út um áramót og ekki er vitað hvað tekur við.


Athugasemdir

Nýjast