Maður var fluttur með sjúkraflugi til Reykjavíkur í dag eftir að hafa fengið köfunarveiki þegar hann var við köfun út af Hjalteyri. Maðurinn hafði verið ásamt öðrum manni að kafa þegar þeir urðu viðskila og hann fór of hratt upp á yfirborðið. Tveir menn heyrðu köll í manninum og settu út bát og gátu dregið manninn að landi. Hann var síðan fluttur til Akureyrar og þaðan með sjúkraflugi til Reykjavíkur.