Fasteignamarkaðurinn á Akureyri er að braggast

Fyrstu átta mánuði ársins var veltan á fasteignamarkaðnum á Akureyri samtals 7,1 milljarðar króna, en á sama tímabili í fyrra var veltan 5,3 milljarðar. Mismunurinn er um 1,8 milljarðar og miðast þessar tölur við skráða kaupsamninga.

Arnar Guðmundsson fasteignasali hjá Miðlun-fasteignum á Akureyri segir greinilegt að markaðurinn sé að taka við sér eftir bankahrun. „Það er augljóst að markaðurinn er að braggast og ég er bjartsýnn á framtíðina.“  Hann segir að stærri eignir vanti á söluskrá og að töluvert sé um að fjárfestar kaupi fasteignir í bænum með það fyrir augum að viðskiptin skili arði í framtíðinni.

NÁNAR VEÐUR RÆTT VIÐ ARNAR Í BLAÐÚTGÁFU VIKUDAGS Á MORGUN.

Nýjast