Freyvangsleikhúsið í Eyjafirði frumsýnir á föstudagskvöld breska gamanleikinni Dagatalsdömurnar, en það var valið besta gamanleikritið í London árið 2010.
Verkið er byggt á sannsögulegum atburðum sem gerðust í London árið 1999. Í því segir frá nokkrum kvenfélagskonum sem taka sig saman og ákveða að gera dagatal með fallegum myndum af sjálfum sér, fáklæddum. Dagatalið ætla þær síðan að selja til að safna fyrir sófa á krabbameinsdeildina á sjúkrahúsinu í heimabæ sínum en eiginmaður einnar þeirra hafði greinst með krabba og þær vilja leggja sitt af mörkum til að gera biðstofuna á sjúkrahúsinu vistlegri. Átök blossa upp í hópnum um gerð dagatalsins og ekki minnka þau í kjölfar frægðarinnar sem konurnar öðlast eftir útkomu dagatalsins.
Steingrímur Magnússon kynningarstjóri segir að ástæða þess að verkið varð fyrir valin sé sú að Freyvangsleikhúsið vilji vekja athygli á baráttunni gegn krabbameini. Þessi sjúkdómur kemur beint eða óbeint við alla og hefur Freyvangsleikhúsið fengið að kynnast því, segir hann.
Öll laun fyrir höfunda- og sýningarrétt renna óskert til rannsókna á sjúkdómnum, en einnig hefur Freyvangsleikhúsið ákveðið að gera enn betur og ánafna Krabbameinsfélagi Akureyrar og nágrennis hluta af innkomunni. Dagatal með dömunum mun að sjálfsögðu einnig koma út og fær Krabbameinsfélagið einnig ágóða af því.
Þetta er í fyrsta skipti sem verkið er sett upp á Íslandi og fékk leikfélagið Davíð Þór Jónsson til að skella því yfir á íslensku. Leikstjóri er reynsluboltinn Sigrún Valbergsdóttir.
Freyvangsleikhúsið er gamalreynt áhugaleikfélag í Eyjafirði, hefur starfað í áratugi. Mikill metnaður hefur einkennt starf þess og má til dæmis nefna að sýningar þaðan voru tilnefndar áhugaverðustu áhugamannasýningarnar ársins árið 2009 og 2011 og hafði félagið þar áður hlotið þessa nafnbót tvisvar.