Ég væri ekki í þessu starfi ef ég hefði ekki áhuga á tónlist, þetta byggist á allt á því og það má segja að ég hlusti á allt sem er gefið út. Enda verður maður að fylgjast vel með því sem er að gerast, sérstaklega hérna á Íslandi, segir Haukur Tryggvason, sem rekur tónlistarstaðinn Græna hattinn á Akureyri. Staðurinn er einn rótgrónasti tónleikastaður landsins og undanfarin níu ár hefur Haukur séð til þess að Akureyringar og nærsveitarmenn fái að njóta þess besta sem íslenskt tónlistarlíf hefur upp á bjóða hverju sinni, í bland við það gamla og góða. Blaðamaður Vikudags settist niður með Hauki, manninum á bak við tjöldin.
Ég byrjaði 1974 að læra til þjóns í Reykjavík. Ég kom svo norður árið 1979 og vann m.a á Hótel Kea í fimmtán ár. Þar hélt ég tónleika annað slagið, svo tók ég við veitinghúsinu Við Pollinn árið 1998 sem seinna varð Vélsmiðjan og er nú 600 bar. Þar var ég aðallega með dansleiki og stundum tónleika á fimmtudögum. Ég tók við Græna hattinum árið 2003 og var mikið með dansleiki fyrst um sinn. Það fjaraði fljótt undan þeim og síðustu sjö árin hef ég eingöngu verið með tónleika.
Nánar er rætt við Hauk í prentútgáfu Vikudags.