Færri innbrot fleiri fíkniefnabrot

Smellið á töfluna til að stækka hana.
Smellið á töfluna til að stækka hana.

Í afbrotatíðindum ríkislögreglustjóra kemur m.a. fram að miðað við tölur fyrir fyrstu fim mánuði ársins hefur innbrotum á landinu öllu heldur verið að fækka á sama tíma og fíkniefnabrotum hefur verið að fjölga. Innbrot voru talsvert fleiri fyrstu fimm mánuði ársins 2010 en árið 2011 og 2012. Þau voru að meðaltali 250 á mánuði í janúar til maí 2010 en 150 að meðaltali yfir sama tímabil 2011. Það sem af er ári hafa tilkynnt innbrot verið 131 að meðaltali á mánuði en flest voru tilkynnt í janúar, eða rétt tæplega 6 á dag (5,6). Vettvangur innbrota er í flestum tilvikum íbúðarhúsnæði, fyrirtæki eða stofnanir, bifreiðar og sumarbústaðir. Fíkniefnabrotum hefur hins vegar fjölgað nokkuð fyrstu fimm máluði árisins á síðustu þremur árum eins og sjá má í meðfylgjandi töflu eða úr 577 árið 2010 og upp í 851 í ár.

Nýjast