Það varð mjög mikið úr þessum peningum, þeir komu sér að góðum notum og það var virkilega gefandi að sjá ánægjuna í augum barnanna, segir Sunna Lind Kúld, Akureyringur sem í nóvember síðastliðnum hélt bingó í Síðuskóla, safnaði með því 127 þúsund krónum sem hún fór með út til Uganda og styrkti skólabörn í þorpi einu utan við höfuðborgina.
Sunna starfaði sem sjálfboðaliði á vegum alþjóðlegu samtakanna AUS í Uganda í fjóra mánuði í fyrra, fór þangað eftir stúdentspróf en hún er einnig sjúkraliði. Hún dvali í höfuðborginni Kampala og m.a. kenndi hún munaðarlausum börnum grunnatriði í ensku og starfaði við heilsugæslustöð í úthverfi höfuðborgarinnar þar sem mikil fátækt ríkir. Meðal starfa hennar þar var að taka blóðprufur til að ganga úr skugga um hvort fólk væri smitað af HIV veirunni auk fleiri starfa.
Sunna er hjúkrunarnemi við Háskólann á Akureyri, en í nóvember síðastliðinum ákvað hún að halda bingó og safna þannig fé til að láta gott af sér leiða. Hún safnaði vinningum hjá fyrirtækjum í bænum og segir að sér hafi á flestum stöðum verið vel tekið. Þá stóð hún í ströngu við bakstur og seldi kökur og kaffi í hléi. Ágóðinn var í allt 127 þúsund krónur, um 1000 dollarar sem Sunna fór með til Uganda strax að loknum jólaprófum í háskólanum.
Sunna dvaldi í Uganda í jólafríinu og ráðstafaði bingópeningunum sjálf, m.a. gat hún keypt ársbirgðir af mat fyrir 50-60 börn sem sækja skóla í þorpi nokkru utan við Kampala, skólabúninga, skólatöskur og fleira sem tilheyrir skólagöngu, vatnsbrúsa og nokkur barnanna fengu skó, en um klukkustundargangur er fyrir þau í skólann og sökum fátæktar áttu nokkurr þeirra enga skó.
Það varð heilmikið úr þessum peningum og hann nýttist mjög vel, segir Sunna. Að hennar mati eru Íslendingar margir hverjir um of gefnir fyrir veraldlega hluti, en hún segir íbúa Uganda lífsglaða og afar nægjusama, góð heilsa sé fyrir mestu og að hafa í sig og á.