Aðalfundur Eyþings Sambands sveitarfélaga í Eyjarfirði og Þingeyjarsýslum lýsir þungum áhyggjum af stöðu Sjúkrahússins á Akureyri hvað varðar mönnun og tækjabúnað. Fundurinn ítrekar hlutverk sjúkrahússins sem þjónustustofnunnar fyrir Norður- og Austurland, þ.e. sérgreinasjúkrahús, kennslusjúkrahús og aðalvarasjúkrahús landsins og hvetur til heildrænnar úttektar og stefnumótunar á heilbrigðisþjónustu á starfssvæði Eyþings og landinu öllu.
Skorað er á velferðarráðherra og ríkisstjórn að leggja fjármagn til lausnar á þeim bráðavanda sem er í mönnun á sérfræðingum við Sjúkrahúsið á Akureyri. Í ályktun fundarins er hvatt til að sett verði á laggirnar nám í dreifbýlislækningum og hjúkrun í samvinnu við Heilbrigðisdeild Háskólans á Akureyri og heilbrigðisstofnanir á svæðinu.