Erna í framboð fyrir Samfylkinguna

Erna Indriðadóttir.
Erna Indriðadóttir.

Erna Indriðadóttir stjórnsýslufræðingur og starfsmaður Alcoa Fjarðaáls hefur ákveðið að gefa kost á sér í annað sætið á framboðslista Samfylkingarinnar í Norðausturkjördæmi, í prófkjöri flokksins sem fram fer dagana 9. og 10. nóvember. Í tilkynningu frá Ernu kemur fram að hún telur brýnt að endurreisn landsins verði haldið áfram á grundvelli jafnaðarstefnunnar. 

Hún hefur áhuga á að beita sér í atvinnumálum og byggðamálum og er þeirrar skoðunar að ljúka eigi aðildarviðræðunum við Evrópusambandið.  Hún telur að halda eigi áfram sjálfbærri nýtingu orkulinda landsins í samræmi við rammaáætlun og vill að fólk sem flytur til starfa á landsbyggðinni fái tímabundinn skattaafslátt.  Þá vill Erna  leggja sitt af mörkum til að bæta umræðuhefð á Alþingi og stuðla að faglegri vinnubrögðum á þeim vettvangi.

Erna var í tíunda sæti á lista Samfylkingarinnar í  kjördæminu í síðustu Alþingiskosningum. Hún starfaði sem fréttamaður á Ríkisútvarpinu í rúm 20 ár, þar af sem deildarstjóri Ríkisútvarpsins á Akureyri í sex ár, en hefur starfað sem upplýsingafulltrúi Fjarðaáls á Reyðarfirði frá árinu 2005.

Nýjast