Töluverður erill var hjá lögreglunni á Dalvík í nótt en margt fólk er samankomið í bænum þar sem Fiskidagurinn mikli verður haldinn hátíðlegur í dag. Engin stór mál hafa hins vegar komið til kasta lögreglunnar og allt farið vel fram. Veðurspáin lítur ágætlega út fyrir Dalvíkinga og er hitinn farinn að nálgast tuttugu gráður. Fjölbreytt dagskrá verður í boði allan dag fyrir gesti og gangandi á hátíðarsvæðinu við höfnina frá kl. 11:00 til 17:00 þar sem allskyns girnilegir fiskiréttir verða á borðstólunum.