Erfiðir tímar en tækifærin eru mörg

Erna Indriðadóttir
Erna Indriðadóttir

 Ég hef ákveðið að bjóða mig fram í annað sæti á lista Samfylkingarinnar í næstu Alþingiskosningum, en prófkjörið verður þann 9. og 10. nóvember.  Það er opið Samfylkingarfólki og einnig þeim sem eru tilbúnir að skrá sig stuðningsmenn flokksins, en það þurfa þeir aðgerafyrir mánaðamótin ef þeir hafa hug á að taka þátt í prófkjörinu.  Í þessari grein er að finna nokkur þeirra mála sem ég legg áherslu á, en ég tel afar mikilvægt að jafnaðarmenn verði áfram í  stjórn landsins eftir næstu kosningar, til að tryggja að unnt verði að standa vörð um grunnþætti velferðarkerfisins, svo sem  heilbrigðisþjónustu og menntamál. 

Á barmi hengiflugs

 Fyrir rúmum fjórum árum stóðu Íslendingar á barmi hengiflugs, voru nánast gjaldþrota þjóð. Tekjur ríkisins minnkuðu gríðarlega, skuldir voru yfirgengilegar, atvinnuleysi fór í næstum 10%.  Óvissa var mikil, sem og tap margra heimila og fyrirtækja.  Það beið ríkisstjórnar Jóhönnu Sigurðardóttur að greiða úr vandanum og lögð var áhersla á að hlífa þeim sem höllustum fæti standa.  Þegar horft er tilbaka til vetrarmánuðanna fyrir fjórum árum, má segja að það sé nánast kraftaverk hvert við erum komin í dag.  Margt hefur áunnist á þessum fjórum árum, en verkefnin eru líka mörg sem bíða.  Það má heldur ekki gleyma því að hin alþjóðlega efnahagskreppa stendur enn og gerir flestum vestrænum þjóðum erfitt fyrir. 

Þjónusta við Drekasvæðið

Meðal þeirra verkefna sem bíða, er að efla atvinnulíf í landinu og auka fjárfestingar til að unnt verði að komast hjá frekari skattahækkunum á einstaklinga og fyrirtæki.  Á Norður og Austurlandi eru mörg tækifæri til aðgeraþað.  Innan nokkurra ára mun væntanlega hefjast leit að olíu á Drekasvæðinu norður og austur af landinu, ef rannsóknarboranir þar reynast jákvæðar. Olíuleitarsvæði og olíuvinnslusvæði þurfa mjög mikla þjónustu.  Það eru til dæmis flutningar á vörum, tækjum og fólki fram og tilbaka.  Nauðsynlegt er að hafa góða höfn, alþjóðaflugvöll, viðgerðarþjónustu, heilbrigðisþjónustu, veitingahús og hótel til að geta annast þjónustu við olíuleitarfyrirtækin og nokkrir staðir á Norður og Austurlandi hafa verið skoðaðir með hliðsjón af þessu.  Það er mikilvægt að ná samstöðu um að bjóða þessa þjónustu á þessu landsvæði, annars eru miklar líkur á að hún verði veitt annars staðar, til dæmis í Noregi eða Færeyjum.

Sóknarfæri í ferðaþjónustu

Orkan í Þingeyjarsýslum er mikil og það á að nýta hana á sjálfbæran hátt og nota til að skapa störf á svæðinu.  Ferðaþjónustan býður einnig uppá mikil sóknarfæri sem mikilvægt er að nýta.  Um 600.000 ferðamenn koma nú hingað til lands á ári og eftir átta ár er búist við að þeir verði orðnir ein milljón árlega.  Þetta er fjölgun uppá 400.000 ferðamenn.  Norður og austurland eiga að einsetja sér að ná drjúgum hluta þessara gesta til sín, en ein af grundvallarforsendum þess er að beint flug verði erlendis frá, til Akureyrar og Egilsstaða.  Það er ekki bara gott fyrir íbúa á þessu svæði að hingað komi fleiri ferðamenn.  Það er nauðsynlegt fyrir þjóðina að dreifa ferðamönnum betur um landið í framtíðinni til að koma í veg fyrir að náttúruspjöll verði á vinsælum ferðamannastöðum á suðvesturlandi.  Þá þarf að hlúa vel að hvers konar nýsköpun.

Norðurslóðir

Það hefur verið áhugavert að fylgjast með vexti og viðgangi Háskólans á Akureyri sem hefur á að skipa afar færum fræðimönnum sem láta æ meira til sín taka í opinberri umræðu.  Skólinn sér sóknarfæri í rannsóknum og upplýsingamiðlun sem tengjast málefnum Norðurslóða, en milli 50 og 100 fræðimenn starfa nú að þeim málefnum í skólanum sjálfum eða stofnunum sem tengjast honum með einum eða öðrum hætti.  Athygli ríkja heimsins beinist í æ ríkara máli að þessum landssvæðum og þeim tækifærum sem tengjast bráðnun íss á Norðurpólnum.  Norðurslóðasiglingar eru ofarlega á baugi og skipafélög eru farin að huga að framtíðarmöguleikum sínum þar, meðal annars Eimskip.  Umskipahöfn á Norðurlandi verður nauðsynleg til að nýta þessi tækifæri. 

Erna Indriðadóttir

Frambjóðandi í prófkjöri Samfylkingarinnar í NA kjördæmi

Nýjast