Enn ekki ljóst hvenær framkvæmdir hefjast

Vínbúðin á Akureyri. Mynd: Hörður Geirsson.
Vínbúðin á Akureyri. Mynd: Hörður Geirsson.

Ekki liggur enn fyrir hvenær framkvæmdir við viðbyggingu Vínbúðarinnar á Akureyri hefjast. Á meðan beðið var úrskurður úrskurðarnefndar skipulags- og byggingarmála, var ákveðið að hafa málið í biðstöðu en nokkrar vikur eru frá því að nefndin kvað upp sinn úrskurð og hafnaði kærum íbúa á svæðinu. Sigrún Ósk Sigurðardóttir aðstoðarforstjóri ÁTVR, segir að ekki hafi enn verið ákveðið hvenær framkvæmdir við viðbygginguna hefjast. Þá hafi heldur engin ákvörðun verið tekin um að hætta við framkvæmdina. Úrskurðarnefnd skipulags- og byggingarmála hafnaði kröfu kærenda um ógildingu ákvörðunar bæjarstjórnar frá 21. júní 2011 um að breyta deiliskipulagi norðurhluta mið­bæjar, er tekur til lóða við Hólabraut og Laxagötu. Jafnframt var hafnað kröfu kærenda um ógildingu ákvörðunar skipulagsstjóra frá 12. október 2011 um að samþykkja byggingarleyfis­umsókn fyrir viðbyggingu við Vínbúðina að Hólabraut 16. Það voru eigendur fasteigna við Hólabraut og Laxagötu sem sendu inn kæru til úrskurðarnefndar vegna þessara mála.

Pétur Bolli Jóhannesson skipulagsstjóri á Akureyri gaf út byggingarleyfið þegar deiliskipulagið var staðfest í október sl. og hefði ÁTVR getað hafið framkvæmdir þá. Þar á bæ var hins vegar ákveðið að bíða þar til úrskurður ÚSB lægi fyrir, sem fyrr segir. “Úrskurður ÚSB er endanlegur sem slíkur, sem stjórnvaldsákvörðun, en íbúarnir geta látið reyna á málið að nýju með því að fara í hefðbundið dómsmál fyrir Héraðsdómi Norðurlands eystra. Það er bæði kostnaðarsamt og gæti tekið þó nokkurn tíma. Á meðan gæti ÁTVR verið langt komið með viðbygginguna og hvar eru menn þá staddir?” segir Pétur Bolli.

Byggingafélagið Hyrna ehf. átti lægsta tilboð í framkvæmdir við viðbygginguna en tilboðin voru opnuð um miðjan desember 2010. Alls bárust átta tilboð í verkið og var kostnaðaráætlun rúmar 77,8 milljónir króna. Hyrna bauð um 68,6 milljónir króna í verkið, eða 88% af kostnaðaráætlun. Samkvæmt útboðsgögnum á sínum tíma átti verkinu að vera að fullu lokið eigi síðar en 1. júní 2011.

 

 

Nýjast