Enginn launamunur hjá Akureyrarbæ

Ráðhúsið á Akureyri Mynd: Hörður Geirsson
Ráðhúsið á Akureyri Mynd: Hörður Geirsson

Að gefnu tilefni óskar Akureyrarbær að taka fram að í rannsókn sem gerð var árið 2007 kom fram að enginn marktækur munur er á launum karla og kvenna sem starfa hjá sveitarfélaginu. Frá því rannsóknin var gerð hefur verið unnið markvisst eftir þeim markmiðum sem sett voru og þeirri stefnumótun sem fram fór árið 2007. Ný könnun á launum kynjanna hjá Akureyrarbæ verður gerð í nóvember nk.

Nýjast