Ríkisskattstjóri hefur lokið álagningu opinberra gjalda árið 2012 á einstaklinga og hefur birt lista yfir fimmtíu hæstu gjaldendur. Enginn af landsbyggðinni kemst á þennan lista, en listinn er sameiginlegur fyrir allt landið. Einstaklingar frá þremur sveitafélögum skipa listann. Flestir koma úr Reykjavík eða 34, tólf frá Kópavogi og fjórir frá Seltjarnarnesi. Það er Þorsteinn Hjaltested, Vatnsenda í Kópavogi, sem er skattakóngur Íslands og greiðir hæstu gjöldin, eða 185.366.305 kr.