Akureyrarbær mun ráðast í endurbætur á sparkvöllum tveggja grunnskóla á árinu 2019 og þremur skólum á árinu 2020. Umhverfis-og mannvirkjaráð bæjarins hefur samþykkt tilboð lægstbjóðanda í verkið fyrir árið 2019 sem eru rúmar 16 milljónir kr., en skipt verður um gras á völlum við Giljaskóla og Lundarskóla á árinu.
Á næsta ári verður skipt um gras á völlum við Síðuskóla, Glerárskóla og Naustaskóla. Þegar er búið að skipta um gras á völlum við Oddeyrarskóla og Brekkuskóla en grasið er endurnýjað í aldursröð. Um er að ræða innfyllingar laust gras sem er sett á sparkvellina.
Endurnýjunin er hluti af viðhaldi vallanna en mikil umræða í samfélaginu var um gervigras á sparkvöllum fyrir tveimur árum vegna dekkjarkurls í gervigrasinu sem þykir hættulegt heilsunni. Ákvað Akureyrarbær að ráðast í endurýjun á átta sparkvöllum í kjölfarið þar sem dekkjakurlinu er skipt út.