11. nóvember, 2012 - 10:11
Fréttir
Frá Svalbarðskirkju
Elvismessa verður í Svalbarðskirkju í kvöld, klukkan 20:30. Hjalti Jónsson og Lára Sóley Jóhannsdóttir leika lög eftir Elvis sem fela í sér erindi um trú og líf. Hver þekkir ekki lög eins og Crying in the Chapel og In the Ghetto? Sr. Bolli Pétur Bollason flytur hugleiðingu um Elvis Aron Presley í samhengi trúar, en Elvis tók þátt í því að útbreiða fagnaðarerindið um Jesú Krist.