Eldað fyrir rúmlega hundrað manns

Við leggjum mikla alúð í matinn og eldum og bökum allt frá grunni. Ef fólk getur ekki verið heima hjá sér um jólin verðum við að sjá til þess að það fái góðan jólamat og það gleður mann,“ segir Anna Rósa Magnúsdóttir forstöðumaður eldhúss Sjúkrahússins á Akureyri.

Að jafnaði eru um 30-60 sjúklingar á sjúkrahúsinu yfir jólin en með starfsmönnum er fjöldinn á bilinu 100-140 manns. Það er því dágóður skammtur af kjöti sem er eldaður yfir hátíðirnar á sjúkrahúsinu. „Við höldum mikið í hefðirnar. Það er möndlugrautur í hádeginu á aðfangadag en um kvöldið eldum við hamborgarhrygg með öllu tilheyrandi. Það eru hins vegar ekki allir sem borða svínakjöt og því er einnig hægt að velja lambalæri. Svo er breytilegt milli ára hvað við höfum í eftirrétt.

Á jóladag er það svo hangikjötið og villikryddað lambalæri á gamlárskvöld. Fólkið hérna er yfirleitt ánægt með jólamatinn,“ segir Anna Rósa.

Nýjast