Á norðanverðu landinu er víða mjög hvasst, norðaustan 18-25 m/s og slydda eða rigning á láglendi en hríðarveður á fjallvegum.
Á Norðurlandi er óveður mjög víða og ekkert ferðaveður en þó sérstaklega Norðaustanlands. Um norðvestanvert landið er ófært um Öxnadalsheiði en annars er hálka mjög víða eða snjóþekja en þó er þungfært á Þverárfjalli. Óveður er á Siglufjarðarvegi og í Norðurárdal í Skagafirði.
Ófært um Víkurskarð, Hófaskarð og Hólasand en þæfingsfærð er á Grenivíkurvegi og Mývatnsöræfum. Víðast hvar annarstaðar er hálka eða snjóþekja og jafnvel éljagangur en eins og fyrr segir og því ekkert ferðaveður.