Ekkert beint flug í vetur

Akureyrarflugvöllur. Mynd: Hörður Geirsson.
Akureyrarflugvöllur. Mynd: Hörður Geirsson.

Ekkert verður af því að Iceland Express bjóði upp á beint flug frá Akureyri til London í haust og í vetur eins og til stóð, þar sem Iceland Express hefur sagt sig úr verkefninu; Ísland allt árið. Þetta segir Heimir Már Pétursson upplýsingafulltrúi Iceland Express. Hann segir hins vegar að horft sé til þess að bjóða upp á beint flug frá Akureyri næsta sumar og þá sé helst horft til London í Englandi, þar sem áhugi virðist mikill á slíku flugi hér norðan heiða.

Heimir segir ennfremur að áfram verði unnið að því að koma á einhverju flugi frá Akureyri yfir vetrarmánuðina fyrir veturinn 2013-2014. Bókanir í beint áætlunarflug milli Akureyrar og Kaupmannahafnar, sem Iceland Express býður upp á vikulega í sumar, hefur að sögn Heimis verið með ágætum og í samræmi við væntingar.

Nýjast