Einn umsækjandi, Sunna Dóra Möller guðfræðingur, var um 50% stöðu prests við Akureyrarkirkju sem auglýst var á dögunum. Embættið er veitt frá 1. ágúst og skipar biskup Íslands í þau að fenginni umsögn valnefnda. Akureyrarkirkja kemur raunar óbeint við sögu vegna umsókna um embætti sóknarprests í Bolungavík því fyrrum prestur í Akureyrarkirkju og núverandi skólaprestur og framkvæmdastjóri Æskulýðssambands þjóðkirkjunnar, og íslandsmeistari í vaxtarækt Jóna Lovía Jónsdóttir sækir um þá stöðu. Fimm umsækjendur eru annars um embætti sóknarprests í Bolungarvíkurprestakalli, Vestfjarðaprófastsdæmi. Embættið veitist frá 1. ágúst 2012. Umsóknarfrestur rann út þann 20. júní síðastliðinn. Umsækjendur eru fimm og þar af þrjár konur. Þau sem sóttu um eru: Séra Ásta Ingibjörg Pétursdóttir; Cand. theol Elín Salóme Guðmundsdóttir; séra Jóna Lovísa Jónsdóttir; Cand. theol. Salvar Geir Guðgeirsson; Cand theol. Sigríður Rún Tryggvadóttir.