Einar Kristinn Kristgeirsson frá Skíðafélagi Akureyrar (SKA) náði glæsilegum árangri á FIS-móti í Geilo í Noregi er hann hafnaði í þriðja sæti í svigi sl. sunnudag. Einar var þriðji eftir fyrri ferðina og hélt því sæti eftir þá síðari. Fjórir iðkendur frá SKA hafa undafarna daga keppt á mótum í Noregi en auk Einars eru það Magnús Finnsson, Arnar Geir Ísaksson og Auður Brynja Sölvadóttir.