Eftirlit með framkvæmd Vaðlaheiðgarganga boðið út aftur

Vegagerðin hefur fyrir hönd Vaðlaheiðarganga hf., auglýst aftur eftir tilboðum í eftirlit með framkvæmd Vaðlaheiðarganga. Vegna þeirra tafa sem urðu á að taka ákvörðun um hvort ráðist yrði í framkvæmdir við Vaðlaheiðargöng, var því frestað oftar en einu sinni að opna tilboð í eftirlit með framkvæmdum. Nú er hins vegar orðið ljóst að ráðist verður í gerð Vaðlaheiðarganga en útboðið í eftirlit með framkvæmdum er nú auglýst að nýju með þeim breytingum sem óhjákvæmilega hafa orðið vegna frestunarinnar. Þeim aðilum sem þegar hafa keypt útboðsgögn verða send ný endurskoðuð útboðsgögn, segir á vef Vegagerðarinnar. Útboðið er einnig auglýst á evrópska efnahagssvæðinu.

Jarðgöngin verða um 7,2 km löng í bergi og er breidd þeirra  9,5 m í veghæð. Heildarlengd vegskála er um 320 m. Verkið nær ennfremur til lagningar um 4,1 km af nýjum vegum. Eftirlitið nær einnig til stýrikerfis, fjarskiptakerfis, hraðamyndavéla og gjaldtökukerfis ganganna. Val bjóðanda fer fram á grundvelli hæfnisvals og verðs og ber bjóðanda að leggja fram tilboð sitt í tveimur hlutum, þ.e. upplýsingar um hæfni bjóðanda og verðtilboð.

Skila skal tilboðum til Vegagerðarinnar á Akureyri eða í Reykjavík fyrir kl. 14:00 miðvikudaginn 8. ágúst 2012 og verða þau opnuð þar kl. 14:15 þann dag og lesið upp hverjir hafa skilað inn tilboðum. Síðari opnunarfundur verður þriðjudaginn 14. ágúst 2012 kl. 14:15 þar sem lesin verður upp stigagjöf bjóðenda í hæfnismati og verðtilboð hæfra bjóðenda opnuð.

 

Nýjast