Efni í nýtt flughlað á Akureyrarflugvelli tekið úr Vaðlaheiðargöngum

„Samningar eru á lokastigi um hvað gert verður við efnið sem grafið verður úr göngunum, það á í raun og veru aðeins eftir að skrifa undir samninga,“ segir Birgir Guðmundsson formaður stýrihóps um gerð Vaðlaheiðarganga. Um 500 þúsund rúmmetrar af efni verða grafnir úr göngunum Eyjafjarðarmegin og um 200 þúsund Fnjóskadalsmegin.

„Allt efnið í Fnjóskadal verður notað til vegagerðar, þannig að það mál er auðleyst,“ segir Birgir.

„Við látum ISAVIA hafa um 200 þúsund rúmmetra af efni, sem notað verður til að gera nýtt flughlað, sem verður norðan við núverandi flugstöðvarbyggingu á Akureyrarflugvelli. Um 200 þúsund rúmmetrar fara í vegagerð Eyjafjarðarmegin og á bilinu 30 til 40 þúsund rúmmetrar fara í að breikka gangstíga meðfram Drottningarbrautinni.“

 Efnið í flughlaðið verður geymt

 Nýju flughlaði er ætlað að þjóna stórum farþegaþotum sem lenda á Akureyrarflugvelli. Núverandi flughlað er of nærri flugbraut fyrir stórar þotur og því er nauðsynlegt að nýtt flughlað verði gert. Efnið úr Vaðlaheiðargöngumverður geymt um óákveðinn tíma, eða þar til fjárveiting fæst til að klára flughlaðið.

karleskil@vikudagur.is

Nýjast