Edward H Huijbens setur stefnuna á 3. sætið á lista VG

Edward H Huijbens
Edward H Huijbens

Edvard H Huijbens forstöðumaður Rannsóknarmiðstöðvar ferðamála á Akureyri hefur ákveðið að taka þátt í forvali Vinstri grænna í Norðausturkjördæmi. Hann sækist eftir þriðja sæti á framboðslistanum.  Hann sendi frá sér eftirfarandi yfirlýsingu:

 Framundan er tími uppbyggingar og endurreisnar í kjölfar tiltektar undanfarinna ára eftir hrun fjármálakerfisins. Nú er lag að leggja grunn að samfélagi sem hefur að leiðarljósi jöfnuð, mannvirðingu og umhverfisvernd. Samfélag þar sem þau gildi sem við höfum fyrir nýjum kynslóðum snúast ekki um sjálfbirgingshátt, græðgi og efnishyggju heldur gæsku, virðingu og umhyggju fyrir gjöfum náttúru og fólksins sem myndar umgjörð lífs okkar.

 Ég bið um umboð þitt ágæti félagi til að leggja mitt á vogarskálarnar við mótun slíks samfélags og sækist eftir þriðja sæti á lista flokksins í komandi forvali 10. desember.

Einkunnarorð mín eru virðing, kurteisi og sanngirni sem ég heiti að hafa í heiðri þegar ég vinn að umgjörð þeirra gilda sem ég lýsti að ofan.  

Eilítið um mig

Ég er fæddur og uppalin Akureyringur af hollenskum ættum. Ég hef helgað líf mitt fræðastörfum og er með doktorspróf í landfræði og heimspeki frá Durham háskóla í Englandi. Ég starfa við rannsóknir á ferðamálum, þá helst gestum okkar og skynjun þeirra og upplifun af náttúru landsins. Þannig hef ég undanfarin sex ár veitt Rannsóknamiðstöð ferðamála forstöðu, sem er samvinnu verkefni opinberu háskólanna hér á landi.  

 

 

Nýjast