Dýrt að vera fátækur

Byggja þarf nýtt flughlað á Akureyrarflugvelli
Byggja þarf nýtt flughlað á Akureyrarflugvelli

„Við höfum staðið í viðræðum við Vaðlaheiðargöng hf um að nýta efni úr Vaðlaheiðargöngum í nýtt flughlað, sem fyrirhugað er að setja upp norðan við núverandi flugstöðvarbyggingu á Akureyrarflugvelli. Nýtt flughlað kostar hátt í 800 milljónir króna, þar af kostar nærri 300 milljónir króna að koma efninu frá gangamunna á framkvæmdastað,“ segir Haukur Hauksson framkvæmdastjóri flugvalla- og mannvirkjasviðs Isavia. Fyrirtækið annast rekstur og uppbyggingu flugvalla landsins.

 

Nýju flughlaði er ætlað að þjóna stórum farþegaþotum sem lenda á Akureyrarflugvelli. Haukur segir núverandi flughlað of nærri flugbraut til að koma slíkum þotum fyrir og því brýnt að slíkt flughlað verði byggt.

„Að okkar mati er hagstæðast að fá efnið úr göngunum, en staðan er einfaldlega sú að fjárhagurinn leyfir ekki að fara þessa leið sem stendur, þar sem fjármagn til framkvæmda er afar takmarkað og leyfir aðeins lágmarksviðhald á mannvirkjum í innanlandsflugvallakerfinu. Því lítur út fyrir að við getum ekki nýtt efnið, nema til komi sérstök fjárveiting. Við höfum bent fjárveitingavaldinu á þetta og að mínu viti liggur boltinn þar.“

Haukur segir að taka þurfi nothæft efni úr námu á Eyjafjarðarsvæðinu, fáist ekki fjármunir til að nýta efni úr göngunum.

„Ef ég þekki rétt til, hefjast gangaframkvæmdir á næsta ári. Þess vegna er svo mikilvægt að línur skýrist sem fyrst. Stórum þotum sem lenda á Akureyrarflugvelli hefur fjölgað nokkuð og aðstæður á vellinum eru ekki nógu góðar. Það liggur þess vegna fyrir að gera þarf nýtt flughlað og hagkvæmasta leiðin er að nýta efni úr göngunum, en það getur vissulega verið dýrt að vera fátækur.“

karleskil@vikudagur.is

Nýjast