Trommarinn Sigfús Örn Óttarsson frá Akureyri skemmti bæjarbúum og öðrum gestum ásamt hljómsveitinni Baraflokknum um sl. helgi á hápunkti Afmælisvökur Akureyrar. Hljómsveitin hélt tvenna tónleika,á Græna hattinum og í stórtónleikum í Gilinu, en þetta var í fyrsta sinn í tvö ár sem hljómsveitin spilar á Akureyri og aðeins í þriðja sinn sem þeira félagar koma saman síðan hljómsveitin ákvað að taka sér pásu árið 1984. Baraflokkurinn sýndi að þeir hafa litlu gleymt frá gullaldarárunum.
Ég hafði ekkert trommað í átta mánuði fyrir tónleikana hérna og ég hefði ekki getað hugsað mér betri aðstæður til að taka upp kjuðanna á ný, sagði Sigfús, þegar Vikudagur settist niður með honum og ræddi við hann um tónlistarferilinn sem spannar um 30 ár.
Sigfús hefur verið einn af fremstu trommurum landsins um árabil og af mörgum verið kallaður trommari Íslands. Eftir að hafa gert garðinn frægan með Baraflokknum á Akureyri á fyrri hluta níunda áratugarins hefur Sigfús spilað með nánast öllum helstu hljómsveitum landsins. Má þar nefna Mannakorn, Stjórnina, KK bandið, Jagúar, Hljómar og Bubba Morthens.
Í einni eða annarri mynd hef ég trommað með öllum helstu hljómsveitum síðari ára, nema kannski þessum allra nýjustu.
Ítarlegt viðtal við Sigfús Örn má finna í prentútugáfu Vikudags.