Vonir KA um að spila í úrvalsdeildinni í knattspyrnu næsta sumar urðu að engu í dag þegar liðið tapaði gegn Víkingi Ólafsvík, 0-4, á Akureyrarvelli í 1. deild karla í knattspyrnu í næstsíðustu umferð deildarinnar. Ólafsvíkingar tryggðu sér hins vegar sæti í efstu deild með sigrinum og fylgja Þórsurum upp í Pepsi-deildina. Mörk Ólafsvíkinga í dag skoruðu þeir Edin Beslija, Torfi Karl Ólafsson, Eldar Masic og Björn Pálsson.