Dr. Áslaug Ásgeirsdóttir skipuð rektor Háskólans á Akureyri

Dr. Áslaug Ásgeirsdóttir er nýr  rektor Háskólans á Akureyri
Dr. Áslaug Ásgeirsdóttir er nýr rektor Háskólans á Akureyri

Dr. Áslaug Ásgeirsdóttir hefur verið skipuð sem rektor Háskólans á Akureyri frá og með 1. júlí næstkomandi. Skipan Áslaugar er samkvæmt ákvörðun Háskólaráðs frá 2. apríl síðastliðnum um að tilnefna hana sem næsta rektor skólans. Háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra samþykkti tillöguna og tekur Áslaug við rektorsstöðunni 1. júlí næstkomandi. Alls bárust fimm umsóknir um embættið en skipað er til fimm ára.

Aðstoðarrektor undanfarin fimm ár

Dr. Áslaug Ásgeirsdóttir starfar í dag sem prófessor við Bates Collage, Lewiston, Maine og hefur starfað þar síðan árið 2001. Áslaug hefur gegnt þar ýmsum stjórnunarstörfum, s.s. starfi aðstoðarrektors og starfi deildarforseta. Áslaug er með doktorsgráðu í stjórnmálafræði frá Washington University in St. Louis í Bandaríkjunum. Auk þess að hafa unnið við kennslu og rannsóknir, hefur Áslaug víðtæka stjórnunarreynslu. Hún hefur í gegnum störf sín hjá Bates College meðal annars komið að stjórnun rannsóknasjóðs, endurskoðun á nefndakerfi, yfirumsjón með námsmati, endurskipulagningu deildar og fleiri verkefnum bæði sem stjórnandi og prófessor. Áslaug hefur einnig starfað sem gestaprófessor við Háskólasetur Vestfjarða og sem Fulbright fræðimaður hjá Háskóla Íslands. Áslaug er þakklát trausti Háskólaráðs til sín og hlakkar til að hefja störf við Háskólann á Akureyri þar sem hún hyggst setjast að. „Háskólinn á Akureyri er góður háskóli sem hefur ákveðna sérstöðu í íslensku háskólasamfélagi og það verður gaman að byggja á þeim grunni til framtíðar," segir Áslaug.


Athugasemdir

Nýjast