Dómi líklega ekki áfrýjað

„Ég geri ekki ráð fyrir að Akureyrarbær áfrýi þessum dómi,“ segir Pétur Bolli Jóhannesson skipulagsstjóri Akureyrarbæjar, en með dómi Héraðsdóms Reykjavíkur í desember síðastliðnum var felld úr gildi breyting á aðalskipulagi Akureyrar 2005-2018 hvað varðar framlengingu Brálundar frá Eikarlundi að Miðhúsabraut.

Þegar framkvæmdir við Miðhúsabraut hófust, var hluti af verkinu tenging hennar um Brálund, sem er ný tenging. Tveir íbúar við götuna stefndu bænum og kröfðust þess að framlengingin yrði felld úr gildi. Hérðasdómur Reykjavíkur dæmdi íbúunum í vil og var götutengingunni því lokað.

Framundan er nú að sögn Péturs Bolla að fjarlægja ummerki við tenginguna. Hann segir að vissulega sé af þessu nokkurt óhagræði, tengingin hafi verið fyrir hendi um nokkurt skeið og bæjarbúar byrjaðir að nota hana.

Eiríkur Björn Björgvinsson bæjarstjóri segir að sér sé ekki kunnugt um kvartanir vegna lokunar vegtengingarinnar.

Kostnaður vegna hennar hefur ekki sérstaklega verið tekinn saman að sögn bæjarstjóra. Bæjarráð hefur falið bæjarstjóra og bæjarlögmanni að vinna áfram að málinu og leggja fram tillögur. Þær eru í vinnslu og verða lagðar fram í bæjarráð í næstu viku.

Nýjast