Danskur sunnudagur í Innbænum

Næsta sunnudag, þann 19. ágúst, verður haldin hátíð í Innbænum á Akureyri sem kallast “Danskur sunnudagur í Innbæ.”  Hugmyndin er sótt í gamla ljósmynd sem tekin var í garðveislu hjá Oddi C. Thorarensen apótekara upp úr aldamótunum 1900. Myndin verður til sýnis í garðinum hjá Minjasafninu. Íbúar í Innbænum, fyrirtæki og stofnanir standa að dönskum sunnudegi ásamt Akureyrarbæ.

Danskur sunnudagur hefst kl: 13:00 og stendur til 17:00. Á milli 14:00 og 16:00 verður gestum boðið heim í garða íbúanna og þar verða veitingar á boðstólum svo sem kaffi, saft og danskt meðlæti. Hljóðfæraleikarar verða á svæðinu og ganga milli garðanna og skemmta gestum og gangandi. Einnig munu félagar úr Karklakór Akureyrar-Geysi ganga um svæðið og syngja. Félagar úr Stangveiðifélagi Akureyrar leiðbeina ungum veiðimönnum við Tjörnina og eru þeir sem vilja taka þátt í því beðnir að koma með veiðistangir með sér. Boðið verður upp á örkennslu í dönsku fyrir þá sem vilja. Gestir eru hvattir til að nota daginn til að fara í svolítinn lautatúr og hafa með sér teppi og nesti og njóta dvalarinna á flötinni í gamla bænum.

Tilgangur með dönskum sunnudegi er að hafa það huggulegt, eins og stundum var sagt áður fyrr, og minnast þeirra sem byggðu upp Innbæinn, elsta og fallegasta hluta Akureyrar. Allir eru velkomnir.    

Nýjast