Listasumar 2026 byrjar með alvöru stuði í dag, fimmtudag kl. 20, þegar Magni og Erna Hrönn stíga á svið ásamt hljómsveit og breyta Göngugötunni á Akureyri í dansgólf.
Öll velkomin! Drífið fram dansskóna og takið þátt í alvöru balli!
Argentíski götulistamaðurinn Eitis Magia hitar upp með stuttri en kröftugri sýningu í Göngugötunni.
Frítt er inn á alla viðburði Listasumars.
Dagskrá Listasumars er á listasumar.is