Ákveðið var að tillögu þáverandi menntamálaráðherra, Björns Bjarnasonar, að 16. nóvember ár hvert, sem er fæðingardagur Jónasar Hallgrímssonar, yrði dagur íslenskrar tungu. Í framhaldi af því hefur mennta- og menningarmálaráðuneytið árlega beitt sér fyrir sérstöku átaki í þágu íslensks máls og helgað þennan dag rækt við það.
Málþing Barnabókaseturs og Háskólans á Akureyri
Barnabókasetur, rannsóknarsetur um barnabókmenntir og lestur barna, og Háskólinn á Akureyri standa fyrir málþinginu Yndislestur - aðlaðandi aðferðir til að auka áhuga barna á yndislestri. Málþingið hefst á morgun kl. 16.15 í stofu M101 í Háskólanum á Akureyri.
Dregið hefur verulega úr bóklestri barna og unglinga síðastliðna áratugi sem er áhyggjuefni því sterk tengsl eru milli áhuga á lestri og árangurs í lesskilningi og þar með námi. Það er því mikilvægt að leita allra leiða til að efla lestraráhuga barna og unglinga og ýta undir yndislestur bæði heima og í skólanum. Á málþinginu verður rætt um unga lestrarhesta, lestrarhvetjandi verkefni og spennandi leiðir til að kveikja áhuga barna á bókum og lestri. Fyrirlesarar eru Kristín Helga Gunnarsdóttir, barna- og fjölskyldubókahöfundur, Ingibjörg Auðunsdóttir, sérfræðingur hjá Miðstöð skólaþróunar Háskólans á Akureyri, Siggerður Ólöf Sigurðardóttir, forstöðumaður skólasafns Álfhólsskóla í Kópavogi, Kristín Heba Gísladóttir, mastersnemi við Háskólann á Akureyri og Brynhildur Þórarinsdóttir, barnabókahöfundur og dósent við Háskólann á Akureyri.
Íslensk tónlist í boði Tónlistarskólans
Á morgun, föstudag, halda nemendur og kennarar Tónlistarskólans á Akureyri tónleika í tilefni af degi íslenskrar tungu og flutt verður íslensk tónlist af öllum toga. Tónleikarnir hefjast kl. 18 í Hofi og er aðgangur ókeypis.
Yndislestur í Hofi
Barnabókasetur og Hof bjóða upp á Yndislestur lokkandi lestur barnabóka fyrir börn á öllum aldri í Hofi á laugardaginn kl. 13-16. Barnabókahöfundarnir Kristín Helga Gunnarsdóttir, Brynhildur Þórarinsdóttir, Þorgrímur Þráinsson og Kristjana Friðbjörnsdóttir lesa upp úr nýútkomnum bókum sínum og rifja upp bernskulestur sinn. Leikarar frá Freyvangsleikhúsinu munu skemmta börnum og fullorðnum með atriði úr Skilaboðaskjóðunni. Áhugasamir gestir geta skoðað sýninguna Yndislestur æsku minnar sem var fyrsta verkefni Barnabóksetursins. Þar segja kunnir Akureyringar ásamt þjóðþekktum einstaklingum frá uppáhalds barnabókinni sinni. Auk þess gefst tækifæri til að skoða 100 bestu barnabækurnar á íslensku að mati bókavarða af öllu landinu.