Dagskrá í Laufási á íslenska safnadaginn

Íslenski safnadagurinn er sunnudaginn 8. júlí og af því tilefni verður sérstök dagskrá í Laufási milli kl. 13.30 og 17.00 og er aðgangur ókeypis. Dagskráin hefst með samverustund í kirkjunni en síðan hefst heyskapur framan við gamla bæinn. Inni í gamla bænum verður fjölbreytt matargerð eins og áður tíðkaðist og gestir geta smakkað á nýstrokkuðu smjöri ásamt ýmsu öðru góðgæti. Jurtalitun fer fram á útihlóðum og kynning á íslenskum jurtum fer fram inn í skála. Þá verður íslenska glíman kynnt og sýnd, harmonikuleikur hljómar um svæðið og Pólarhestar teyma undir börnum. Útgerðarsafnið á Grenivík verður opið á milli kl. 13 og 17 og verður frítt inn á íslenska safnadeginum.

Nýjast