Chantel Jones best í kvennaflokki

Chantel Nicole Jones stóð sig frábærlega á milli stanganna í sumar hjá Þór/KA en óvíst er hvort hún …
Chantel Nicole Jones stóð sig frábærlega á milli stanganna í sumar hjá Þór/KA en óvíst er hvort hún verði áfram með liðinu.

Chantel Nicole Jones, markvörður Þórs/KA, var valin leikmaður ársins í kvennaflokki í lokahófi KSÍ sem fór fram í Hörpu í vikunni er sumarið í Pepsi-deild karla og kvenna í knattspyrnu var gert upp. Jóhann Gunnar Kristinsson var kjörinn þjálfari ársins, en hann gerði Þór/KA að Íslandsmeisturum í sumar á sínu fyrsta tímabili með liðið. Atli Guðnason var valinn besti leikmaður í karlaflokki og Heimir Guðjónsson besti þjálfarinn, báðir hjá FH. Efnilegustu leikmenn sumarins voru valin Jón Daði Böðvarsson Selfossi og Glódís Perla Viggósdóttir Stjörnunni.

Þeir leikmenn sem þóttu prúðastir í sumar voru Grétar Sigfinnur Sigurðarson KR og Anna Þórunn Guðmundsdóttir ÍBV. Dómarar ársins voru valdir þeir Gunnar Jarl Jónsson í karlaflokki og Ívar Orri Kristjánsson í kvennaflokki. Þá voru einnig valin stuðningsmannalið ársins, í karlaflokki var það Silfurskeiðin, stuðningsmenn Stjörnunnar, en í kvennaflokki stuðningsmenn Breiðabliks.

Í liði ársins í kvennaflokki átti Þór/KA fimm fulltrúa en liðið er þannig skipað: Chantel Nicole-Jones (Þór/KA), Arna Sif Ásgrímsdóttir (Þór/KA), Guðrún Arnardóttir (Breiðabliki), Anna B. Kristjánsdóttir (Stjörnunni), Gunnhildur Yrsa Jónsdóttir (Stjörnunni), Kayle Grimsley (Þór/KA), Danka Podovac (ÍBV), Katrín Ásbjörnsdóttir (Þór/KA), Fanndís Friðriksdóttir (Breiðablik), Sandra María Jessen (Þór/KA) og Elín Metta Jensen (Val).

 

Nýjast