Retro Stefson, Pálmi Gunn & Helena Eyjólfs saman á sviði

Retro Stefson
Retro Stefson

Akureyrarvaka verður haldin um þarnæstu helgi. Hápunktur hátíðarinnar verður laugardaginn 31. ágúst þegar efnt verður til litríkrar listaveislu með alþjóðlegum blæ á Ráðhústorgi, í Listagilinu og víðar um bæinn. Dagskrá laugardagsins lýkur með útitónleikum hljómsveitarinnar Retro Stefson og gesta á risasviði neðst í Listagilinu.

Yfirskrift tónleikanna er Retro Stefson Karnival. Hljómsveitin vinsæla flytur þar eigin lög en klæðir einnig alkunna smelli frá fyrri tíma í „Retro Stefson búning“ og fær í því skyni til liðs við sig m.a. söngvarana Pálma Gunnarsson og Helenu Eyjólfsdóttur.

Aðrir hápunktar dagsins eru Vísindasetur í Rósenborg þar sem ýmsar furður verða kynntar ásamt því að sérfræðingar útskýra sprengingar í Vaðlaheiðargöngum. Boðið verður upp á forvitnilega eldhúsrétti frá fjölda þjóðlanda í Menningarhúsinu Hofi. Þar verða einnig kynntir barnaleikir frá öllum heimshornum og efnt til handverksmarkaðar. Listagilið verður iðandi af lífi allan laugardaginn með tónlist, listsýningum, matarmarkaði, listmálurum að störfum og fleiru.

Nýjast