Bylting í menntun stafsfólks ferðaþjónustunnar

Ásbjörn Björgvinsson
Ásbjörn Björgvinsson

„Háskólinn á Hólum í Hjaltadal og Háskólinn á Akureyri hafa menntað fólk til starfa, þannig að eftir er tekið. Til að greinin blómstri og vaxi í framtíðinni er gríðarlega mikilvægt að hún sé skipuð menntuðu fólki," segir Ásbjörn Bjögvinsson framkvæmdastjóri Markaðsskrifstofu Norðurlands og hann líkir þróuninni við byltingu.

 

"Ferðafólk er almennt kröfuhart og til að uppfylla öll skilyrði er besta leiðin að hafa á að skipa faglærðu starfsfólki. Um þetta er almennt ekki deilt."

Stjórnsýslan

„Ferðaþjónustan er mjög afskipt í stjórnkerfinu. Hún er eins og afdalabyggð. Í ráðuneyti atvinnumála eru starfsmenn sem sinna ferðaþjónustunni sérstaklega taldir á fingrum annarrar handar. Þegar ferðaþjónustan færðist úr samgönguráðuneytinu yfir í iðnaðarráðuneytið fluttist einn starfsmaður milli ráðuneyta. Rannsóknir í ferðaþjónustunni hafa fram til þessa verið í skötulíki en með eflingu starfseminnar hjá Rannsóknarmiðstöð ferðamála sem er starfrækt við Háskólann á Akureyri hefur orðið breyting á og við hérna fyrir norðan njótum sannarlega góðs af, ásamt góðri samvinnu við ferðamálabrautina á Hólum í Hjaltadal.“

karleskil@vikudagur.is

Nýjast