Byggingamenn: Hafa áhyggjur af vetrinum

„Staðan er góð núna og sumarið lítur vel út en við höfum hins vegar áhyggjur af vetrinum,“ segir Heimir Kristinsson, varaformaður hjá Byggiðn, um stöðu mála í byggingaiðnaði á Akureyri. Hann segir stöðugt fari fækkandi á atvinnuleysisskrá og verktakar hafi fengið nóg af verkefnum í sumar. „En eins og undanfarin sumur eftir efnahagshrunið að þá er óvissa með haustið og veturinn. Fyrirtæki hafa mörg hver verið að halda í við sig að bæta við sig mannskap þar sem verkefnin eru ekki nægileg mörg til framtíðar,“ segir Heimir. Mörg stór verkefni klárast í haust, t.d. framkvæmdir við Naustaskóla sem SS Byggir er með, en enginn verkefni af þeirri stærðargráðu eru í kortunum. „En hins vegar er ég aðeins bjartsýnni fyrir þetta haust en undanfarin ár,“ segir Heimir. 

Nýjast