Bygging nýrrar legudeildar við Sjúkrahúsið á Akureyri í augsýn

Þess er vænst að ný legudeild við Sjúkrahúsið á Akureyri verði risin eftir fimm ár.
Þess er vænst að ný legudeild við Sjúkrahúsið á Akureyri verði risin eftir fimm ár.

„Við ætlum að verkefnið gangi vel og sjáum fyrir okkur að innan fimm ára verði ný legudeildarbygging risin og breytingar gerðar á legudeildarstarfsemi í eldri byggingum spítalans,“ segir í frétt á vef Sjúkrahússins á Akureyri

SAk skrifaði nýlega undir ráðgjafasamning við NLSH ohf. og hefur þannig hafið undirbúning sín megin m.t.t. notendahópa, verkefnastjóra og annarra sem að verkefninu koma.

 Fjármálaráðherra hefur gert breytingar á skipulagi framkvæmda er varða sérhæfða sjúkrahúsþjónustu og er NLSH ohf. falið að fara með verklegar framkvæmdir er varða uppbyggingu á innviðum sérhæfðrar sjúkrahúsþjónustu. NLSH ohf. mun því vinna að nýrri legudeildarbyggingu fyrir Sjúkrahúsið á Akureyri í samstarfi við sjúkrahúsið. Um er að ræða endurskoðun á frumathugun á byggingu legudeilda sem er gert ráð fyrir að ljúki á næstu mánuðum. Í framhaldi af því verður farið í útboð á fullnaðarhönnun nýju byggingarinnar og mun sú vinna fara fram síðar á þessu ári. Þá mun NLSH ohf. einnig tryggja að fram fari ástands-, eiginleika- og hentugleikaskoðun á eldri byggingum sjúkrahússins.

 


Athugasemdir

Nýjast