Búseti á Norðurlandi: Skuldir umfram eignir nærri 2 milljarðar

Stórhýsi Búseta við Kjarnagötu á Akureyri. Mynd:Karl Eskil
Stórhýsi Búseta við Kjarnagötu á Akureyri. Mynd:Karl Eskil

Húsnæðissamvinnufélagið Búseti á Norðurlandi á og rekur 234 íbúðir, skráðir félagsmenn í lok síðasta árs voru hátt í áttahundruð.

Samkvæmt ársreikningi voru eignir félagsins samtals 5,5 milljarðar króna um áramótin, en félagið skuldaði á sama tíma 7,3 milljarða. Bókfært eigið fé var því neikvætt um 1,9 milljarða og eiginfjárhlutfall félagsins neikvætt um 34 %. Tap síðasta árs var 270 milljónir króna.

Benedikt Sigurðarson framkvæmdastjóri segir að unnið hafi verið að endurskipulagningu á skuldum félagsins.

„Það liggur fyrir samkomulag um skuldir félagsins við okkar lánardrottna, Íbúðalánasjóð og Íslandsbanka. Á þessari stundu er ekki hægt að greina nákvæmlega frá þessum samningum, það verður vonandi hægt að gera á næstu vikum.“

Benedikt segir stefnt að því að skuldir verði svipaðar og eignir, eftir að gengið hafi veri formlega frá samkomulaginu. Eins og fyrr segir var eigið fé neikvætt um síðustu áramót um 1,9 milljarða króna.

„Rekstur félagsins er ekki í hættu, svo lengi sem eftirspurn er eftir búseturétti. Ef búsetarnir yfirgefa félagið, fer það hins vegar í þrot, það segir sig sjálft.“

Benedikt segir að á sínum tíma hafi verið leitað til fagaðila varðandi fjármögnun framkvæmda. Erfið fjárhagsstaða hafi bitnað á rekstrinum.

„Óðaverðbólgan hefur vissulega sett stórt strik í reikninginn hjá okkur, rétt eins og hjá hinum almenna íðúðareiganda í landinu. Með þessu samkomulagi má segja að félagið sé komið fyrir vind.“

Aðalfundur Búseta var haldinn um miðjan september. Á næstu vikum verður boðað til funda í öllum íbúðakjörnum félagsins.

karleskil@vikudagur.is

 

Nýjast