Búist er við mikilli umferð norður yfir heiðar í dag en að sögn lögreglunnar á Akureyri er mesta umferðarhelgi ársins framundan á Norðurlandi. Töluverður fjöldi fólks er kominn til Dalvíkur þar sem Fiskidagurinn mikli verður haldinn hátíðlegur og iðulega mörg þúsund manns sem sækja þá hátíð heim. Einnig fer handverkssýning fram í Hrafnagili og reiknað með töluverðum fjölda gesta á þá hátíð sem hefur farið vaxandi.